Viðhald og viðgerðir fasteigna
Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fagaðila með sérþekkingu í viðhaldi fasteigna.
Við erum með fagaðila í þitt verk
Stýra sérhæfir sig í alhliða viðhaldi fasteigna, þar með talið múrvinnu, trésmíðavinnu, þakviðgerðum, gluggaviðgerðum og viðhaldsvinnu.
Við höfum mikla þekkingu á sviði verkefnastjórnunar og náum við árangri vegna stjórnunarlegri hæfni okkar til að klára verkefni.
Hjá fyrirtækinu starfar fjölbreyttur hópur iðnaðarmanna með sérþekkingu á mörgum sviðum.
Okkar fagaðilar
Múrarameistarar
Við tökum að okkur alls kyns múrverk hvort sem það er innanhúss eða utanhúss.
Við tökum að okkur:
- Múrviðgerðir
- Múrverk innanhúss
- Flísalagningu
Húsasmíðameistarar
Við tökum að okkur alla trésmíðavinnu bæði innan- og utanhúss.
Við sérhæfum okkur í:
- Áklæðningum
- Þakviðgerðum
- Trésmíðavinnu
- Gluggaviðgerðum
- Innréttingu húsnæða
- Gifsveggjum
- Annarri almennri smíðavinnu
Málarameistarar
Við tökum að okkur alla málningarvinnu bæði innan- og utanhúss.
Við sérhæfum okkur í:
- Innanhússmálun
- Utanhússmálun
- Nýbyggingum
- Þakmálun
Verkefnastjórnun
Við höfum víðtæka reynslu og þekkingu á öllum hliðum verkefnastjórnunar, hvort sem um ræðir við undirbúning eða umsjón framkvæmda. Við trúum því að örugg stjórnun og utanumhald stuðli að traustari og betri verkum. Starfsmenn okkar hafa mikla reynslu á öllum stigum framkvæmda og þeirra á meðal eru löggiltir húsasmíðameistarar og byggingarstjórar.
Byggingastjórnun
Við stjórn byggingarframkvæmda hvers leyfisskylds mannvirkis skal á hverjum tíma vera einn byggingarstjóri. Byggingarstjóri er faglegur fulltrúi eiganda við mannvirkjagerð og starfar í umboði hans samkvæmt skriflegum ráðningar- eða verksamningi við eiganda. Byggingarstjóri skal gæta réttmætra hagsmuna eiganda gagnvart byggingaryfirvöldum, hönnuðum, iðnmeisturum og öðrum sem að mannvirkjagerðinni koma.
Ertu með pælingar?
Við höfum mikla reynslu á sviði framkvæmda!
Okkar þjónustur
Fagaðilar okkar eru með mikla reynslu í húsaviðgerðum og hafa gert upp fjölda bygginga.